Barbarelli
Áhugavert að skoða
19.02.2008 21:35:44 / erlingtom

komin með nyja síðu

nyja síðan er www.barbarelli.blog.is sjáumst þar

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 19:32:26 / erlingtom

smá update hér að norðan

jæja það er smá fréttir frá okkur að norðan.. ég keypti mér mótorhjól í dag :lol: Svo maður er byrjaður líka að taka mótorhjólaprófið því maður þarf víst að vera með svoleiðis;) En auðvita er nú ekki hægt að keyra það núna hér á akureyri því það er auðvita snjór útum allt... annars er allt gott að frétt að norðan svo ég læt þetta duga í billi..

bless Elli og Barbara

p.s það er mynd að því í myndaalbúminu...


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 21:10:11 / erlingtom

smá innskot

Nyjar myndir :lol:


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 22:36:22 / erlingtom

Nýtt ár gengið í garð

Jæja gott fólk þá er komið nýtt ár með nýjum væntingum og nýjum ævintýrum. Þetta er nú búið að vera meiri jólin, við Elli erum búin að vera á meiri háttar flakki og verið á tveimur stöðum í smá tíma. Erum búin að vera með tvær blómarósir í heimsókn yfir hátíðarnar og er það búið að vera frekar skemmtilegt og krefjandi, það hefur ýtt undir foreldrar hlutverkið hjá okkur báðum. Erum búin að borða veislumat nánast yfir allar hátíðarnar enda þegar maður er á tveim stöðum í mat þá fer maður bara það besta á báðum stöðum;) Fengum alveg geggjaðar jólagjafir og svo má segja að við gætum farið að búa, það vantar bara íbúðina og nokkra innanstoksmuni en það nauðsynlegasta er nánast komið. Það var yndislegt að fylgjast með stelpunum taka upp pakkana og er farin að hlakka til þegar mín börn koma í heiminn. Litlu dúllurnar voru reyndar veikar þegar þær komu en þær náðu sér fljótlega og svo milli jóla og nýárs þá fengu Eyja mamma og Elli afi flensu og eru enþá að jafna sig. Svo að á gamlárskvöld vorum við Elli, Rósa og stelpurnar þau einu vakandi yfir skaupinu og þegar nýja árið gekk í garð. Stelpurnar urðu smá smeikar yfir flugeldunum þegar þeir stóðu sem hæðst, og ég fór inn þegar var búið að puðra upp tertunnum okkar og fór að huga að hundinum, sem var ótrúlega en satt bara ekkert hræddur við flugeldana, hann varð meira spenntur en hræddur óð um öll gólf og þegar við opnuðum út á pall þá fór hann út á pall smá hring og inn aftur og þetta gekk í smá tíma. Sóley litla var nú bara skíthrædd og grét bara úti, svo að það var bara gott að horfa á sprengingarnar út um gluggann í fanginu á mér og á meðan var tobbey úti með ella frænda. Þetta er búið að vera frábært ár 2007 og vona ég að 2008 verði enþá skemmtilegra. Vil óska þeim sem við þekkjum Gleðilegt nýtt ár og farsældar á komandi ári.

Sprengikveðja           

Barbarelli


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 16:27:43 / erlingtom

Senn líður að jólum

Jæja þá fer að koma jól og viljum við Erling óska öllum sem skoða síðuna okkar Gleðilegra jóla og farsældra á nýju ári...

 

Jólakveðja að norðann

Erling og Barbara

P.S ekki borða of mikið um jólin;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 14:22:36 / erlingtom

Ferðasaga

Jæja þá er maður búinn að vera heima í tvo daga og timi kominn til að bogga. Elli er kominn með meiraprófið og náði því alveg með glæsibrag. :haha: Jæja þá er komið að suðurferðinni, lögðum snemma af stað og vorum komin um tvö í borg óttans, fórum strax til Rósu og stelpnana því að auðvitað vildum við sjá þær áður en þær færu til Davíðs sem er pabbi þeirra. Kikktum svo til systir minnar sem er komin með ekkert smá sæta bumbu enda er að fjölga hjá okkur, reyndar í báðum famelíum bæði hjá mér og Ella. svo þegar var búið að sækja stelpurnar þá var farið og fengið sér að borða á Amerikan Style ekkert smá góður matur, eftir það var farið í ikea og skoðað vel og mikið. Þegar það var búið þá var farið í heimsókn til Ása og Möggu, (Ási er bróðir Ella) hjá þeim var setið og spjallað og það var alveg frábært timi sem við áttum það, svo var farið heim og farið fljótlega að sofa. Það var vaknað snemma næsta dag og farið á þvæling, það var farið í Pier, toy'sRus, eggið og rúmfó, reyndar var rúmfó tekinn á korteri, átti tima hjá lækni sem ég varð að komast í. Á meðan við stelpurnar fórum í Eggið og rúmfó fór Elli í elkó. Eftir að hafa fengið okkur að borða á KFC ekkert óvænt við það var farið í heimsókn til Völlu og Sigmars. (Valla er systir Ella) og setið þar og spjallað og borðað voflur og annað meðlæti. Eftir að við fórum frá þeim var haldið í kríngluna en ekki stoppað þar lengi bara það allra nauðsynlegasta gert það. Svo var haldið heim og þar var borað langt fram á kvöld, hjálpa Rósu að hengja upp ymsa hluti sem þurtu að komast upp á vegg. Svo spiluðum við Rósa yatsi langt fram á nótt og svo farið að sofa um tvö leitið. Svo var farið semí snemma á fætur og við rósa fórum í smá verslunar ferð áður en við Elli fórum aftur til Akureyrar. Reyndar komumst við ekki af stað fyrr en um karter yfir þrjú, en það var samt ekki svo slæmt, og það var alveg frábært að komast heim þótt að þessi helgi hafi verið frábær í alla staði. Svo vorum við Rósa eins og drotningar í borginni því að við urðum ekkert að halda á pokum eða keyra körfuna, ég er með algjörum herramanni.;) Svo eru bara 2. dagar í að bróðir minn komi heim og konan hans:D

Meira seinna Barbarelli

Munið að kvitta og skrifa í gestabókna:klikk:

P.S fullt af nyjum myndum;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 15:06:33 / erlingtom

Smá update

Við Elli erum að fara til Rvk á föstudaginn og komum aftur á sunnudaginn,:haha: en af okkur er lítið að frétta eins og venjulega nema að Elli fer í traler prófið á morgunn og vona ég það besta.:D Þá er hann búinn með meiraprófið og það er æðislegt fyrir hann. Svo fer að líða að því að bróðir minn og kærasta hans komi til landsins og verður gaman að sjá þau. Svo verða Rósa og stelpurnar hennar hjá okkur um jólinn og það verður bara ÆÐISLEGT og hlakka ég mjög mikið til:lol:

 

Meira seinna

Barbarelli

Farið hægt um gleðinar dyr og farið varlega í hálkunni

 

Muna að kvitta og commenta


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 21:27:07 / erlingtom

smá meira frá okkur

Við fórum í smá sunnudagsrúnt til reykjavíkar bara svo Barbara gæti fengið sér að borða á KFC:lol: og svo heim aftur sama dag:) Reyndar það rétta var að við fórum með litlu dömurnar heim til mömmu sinnar svo það var gripið tækifærið að fá sér að borða á kfc... Því Barbara er ekki annað búið að tala um síðustu vikur en að fá sér einn kjúlingaborgara hjá þeim:)...

 

kv Erling og Barbara


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 16:21:00 / erlingtom

Betra seint en aldrei

hæhæ eftir mikinn þrysting frá frá vinum og vandamönum verðum við víst að koma með fréttir.:S Elli er búinn að ná bóklega partinum af meira prófinu og á bara eftir að klára ökutímana og taka svo prófið. Ég er ekki leingur með hjálpartækin og er haltrandi út um bæinn.:lol: Það eru búnar að vera tvær blóma rósir í heimsókn hjá okkur og er það búið að vera góður tími, enda eru þær æðislegar í alla staði og fyrir myndar stelpur og ALLS EKKI góð getnaðarvörn.:evil: Þær voru smá smeikar við Ella frænda en það er búið og þær tóki smá tíma líka að venjast mér en það fór fljótt, þær eiga Ella afa of Eyju ömmu alveg skuldlaust og þær eiga líka símon og skugga skuldlaust, þótt að skuggi sé ekki lengur hundur heldur hestur, og ég fékk að hjálpa Tobbey að skyra hann og hann heytir blakur. :D leifi Ella að koma með eithvað meira ef honum dettur eithvað í hug8| en annars þá förum við skötuhjú suður með stelpurnar suður í fyrramálið og komum aftur um kvöldið svo að það verður stutt stopp núna en við plönum að koma í desember og verða yfir helgi:haha:

Þangað til næst passið ykkur á hálkunni og farið verlega í myrkrinu sem er farið að koma ansi snemma og fer seint......

 

Munið gestabókina og að kommenta;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.10.2007 22:18:07 / erlingtom

Hædýhó.....

Jæja þá er maður byrjaður á námskeiði fyrir meiraprófið og er búinn með tvo daga í námskeiðinu, er líka byrjaður aftur í curling og er búinn að keppa tvo leiki,  Barbara er öll að koma til eftir aðgerðina en þarf enþá að notast við hjálpartækin, þó ekki ástarlífsins;) Erlingur bróðir Barböru  er farinn til Köben og er búinn að koma sér vel fyrir í faðmi kærustunnar. símon er farin að líkjast ketti aftur og er farinn að vera líkur sjálfum sér í hegðunn, Skuggi stækkar bara og stækkar og er að við höldum botnlaus hvað varðar mat. Af hinu fólkinu er allt gott að frétta.  

 

Kaldar kveðjur að norðann 8)

P.S nyjar myndir:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 20:10:56 / erlingtom

nýjar myndir

komnar nýjar myndir af símoni :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 21:43:37 / erlingtom

nokkrar fréttir af okkur loksins :P

jæja þá í þetta sinn þá er komið að smá fréttum frá okkur. Elli er kominn á fullt skrið og hlakkar ekki til snjósins, enda er ekki voða spennandi að vakna fimm á morgnana og fara að keyra, það allavega heillar mig ekki mjög mikið. Skuggi "litli" er samur við sig alltaf jafn sætur og gerir ekert annað en að stækka enda borðar hann vel, hann er líka farinn að að hlyða betur núna enda orðin 6 mánaða. Símon litli kallin okkar er algjör inni púki þessa dagana enda ekki mikið hár á honum núna, það þarf að raka hann tvisvar á ári vegna hárlos. Það er aðens 1 dagur þangað til ég fer í aðgerð á fæti, ekki voða stóra aðgerð en  verð frá vinnu í rúmar 6 vikur en það er ekki mikil borgun fyrir verklausann fót. Elli gamli fer í skoðunn sama dag og vonum að eithvað gott komi út úr því, Eyja hefur það gott og hefur nóg fyrir stafni. Af mínu fólki að frétta er mest lítið nema pabbi er kominn með mótorhjólapróf og er hæst ánægður með það. Mamma er hinsvegar smá sorgmædd en á sama tíma ánægð fyrir hönd bróðir mins því hann er að flytja til Danmerkur á næstu vikum og eigum við eftir að sakna hans svoltið, en hann er að gera það sem honum langar til að gera fara í skóla og vera með kærustunni sinni. en nóg af okkur í bili, reyni að koma með meira á næstu dögum. Kærar kveðjur að norðann Barbara og Elli

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.08.2007 20:53:20 / erlingtom

nýjar myndir

Það eru nýjar myndir af Skugga og svo á breytingunum í forstofuni...

kv Barbarelli


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 22:20:35 / erlingtom

Afmæli...

Jæja þá er karlinn orðinn árinu eldri en hann var á föstudaginn, átti afmæli í gær. Fórum út að borða í tilefni dagsins og kíktum svo aðeins út á lífið. Annars er af okkur að frétta að við máluðum og vegfóðruðum forstofuna hjá Eyju mömmu og Ella pabba og setjum við upp myndir fljótlega af því, svo var breytt einu sinni en hjá okkur skötuhjúum og er þetta allt annað líf núna, svo fer Elli aftur að vinna á morgunn og hann er ekkert voða spenntur við þá tilhugsun, ætli ég verði ekki eins og hauslaus hæna fyrstu dagana enda búin að hafa hann með mér núna í þrjár vikur....Svo var Elli að taka þátt í gólfmóti með vinnufélaga sínum og þeir enduðu í 5. sæti af 5;) en þeir hafa samt ekki spilað eins mikið gólf eins og hinnir sem þeir voru að keppa við....

 jæja þá látum við þetta duga eitthvað fram í tíman og við reynum að skrifa fljótlega aftur...

 kveðja Barbara og Elli


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 15:41:39 / erlingtom

Smá fréttir

Hæhæ þá er Elli kominn í sumarfrí og verður það í 3 vikur, ekki er vitað hvað á að gera af sér8) unnum aðeins við húsið í gær og fórum í ljós í dag. Á sunnudaginn fórum við í Jarðböðin í Mývasveit og var það frábært, fórum með Ernu mömmu, Erlingi og Hrefnu, fengum rólega viku um daginn þegar Eyja mamma og Elli pabba fóru í bústað og við vörum með dýrirn heima, Skuggi gerir ekkert nema að stækka, enda er hann alltaf borðandi, hann er eiginlega hættur að stríða Símoni(enda sem betur fer)

Bless í bili og munið að kvitta í gestabók og kommenta

 

Elling og Arbara 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 11079
Klukkan
RSS tengill
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 21 febrúar